Sunday, September 24, 2006

Myndir

í rauð bikiníi er Vera, svo er Claudia og Marko
Bolurinn frægi sem ég fékk
Mín á leið á djammið á laugardaginn

Party time:)

Þá kom loksins að því að stelpan fór á djammið hérna!!! Ætlaði nú ekki að nenna því það var búin að vera gegjuð rigning allan daginn og mín var bara í kósý fíling:) En svo hringdi Anna í mig og náði að plata mig út:)
Þegar ég kom á lesta stöðina var þar hópur af strákum sem voru að steggja vin sinn og fengu mig til að kissa hann á kinnina!! ég var svona létt að fíla að rugla í þeim og þeir gáfu mér þennan fína bol með mynd af steggnum:) Þetta var svo frekar fyndin leið til Valencia 1 stelpa með 16 gaura í kringum sig og bara 3 töluðu spænsku þannig þeir voru á fullu að þíða allt ruglið fyrir hinna.. fólk glápti mikið!!! En þetta eru fínir gaurar og ég tók númerið hjá þeim og við ætlum að djamm saman:)
Ég fór heim til Önnu og við skelltum okkur svo út að borða. Eftir mat fórum við að rölta á milli staðana og leita að réttu tónlistini. Við hittum svo aðra bekkjasystir okkar og hún var með einhverjum 2 þýskum gaurum og við djömmuðum saman:)
En það kom mér ekkert smá á óvar hvað fólk er yndislegt!! við vorum á einum stað að dansa og ég var alveg að pissa á mig og klóstið var ekki beint geðslegt og ég skal seigja ykkur það þegar maður er edrú þá lætur maður sig ekki bara hafa það!!! en allavega ég ætlaði að hlaupa á næsta stað til þess að pissa en þá sögðu 2 norskar stelpur sem við höfðum hitt að ég gæti bara tekið lyklana af íbúðini þeirra og farið þangað að pissa!! Bara nice íbúðin var beint á móti staðnum sem við vörum á þannig ég var mjög þakklát:) svo buðu þær mér líka í party eftir 2 vikur:) frábærar stelpur ætla að taka myndavél með næst til að geta sínt ykkur myndir:)
En svo var maður bara alveg búin um 5 og ég og Anna tókum leigubíl heim til hennar og láum bara upp í rúmi að tala til 7:)
Svo vaknaði maður um 10 leið einsog ég væri þunn!!! ósangjarnt ég hélt ég ætti að vera laus við það drasl núna!! En við drifum okkur á ströndina og ég lá þar einsog klessa til klukkan 6 ahhhhhhhhh I love it!! svo fékk ég mér bara ís nammi namm og dreif mig svo heim:)
Það er svo frábært fólk hérna ég má sofa allstaðar og allir eru bara eitthvað svo afslappaðir þetta er bara gegjað!!! mæli með að þið kíkið á mig fallega fólk!! væri bara gaman!!
Love u all!!!

Wednesday, September 20, 2006

nei Hellllú;)

Jæjá já mín ætlaði að vera svaka dugleg áðan og horfa á sænskt sjónvarp!! En nobb mín fann einu enskustöðina í tvinu!!! þannig ég horfði bara á handlaginheimilis faðir í góðum fíling:)
En annars er ég búin að eiga frábæran dag!! Ég fór í skólan og lærði fullt af sniðugum orðum...
Svo fór ég og Vera á ströndina komum við á litlum krúttlegum take away stað með geðveikt góðum heimatilbúnum spænskum mat!! og kostar bara 2,90 evrur!!
Svo hittum við nokkra krakka á ströndini flestir frá þýskalandi og ein hollensk stelpa allt alveg æðslegir krakkar!! Þau höfðu öll svaka áhuga á Íslandi og ein hélt að við værum með hunda sleða!! hvað er málið líkist ég eskimóa!!!!Þau reyndu svo að tala íslensku!! En nei ekki séns!! En allavega ég ætla kíkja á djammið með þeim um helgina;)
Ég lenti samt í frekar óþægilegu dæmi í dag, ég var að ná í strákana í skólan og er að koma þeim inn í bílinn, þá keirir einhver kall upp að mér og byrjar að babla eitthvað ég seigist ekki tala spænsku og týpíst eini spánverjin sem ég hef hitt sem talar smá ensku er þetta gerpi!! en hann var að spurja hvort að þetta væru börnin mín og hvort ég væri þarna alltaf á þessum tíma!!!! Frekar óþægilegt hann var eitthvað svo spúkí ég var hrædd um að hann mundi elta mig heim!!!
Ef hann er þarna á morgunn ætla ég á fara æfa box!!!
En nú er komin lúlu tími hjá mér:)
Góða nótt

Monday, September 18, 2006

Monika kom í ljós!!

Ég fór í skólan í dag... var búin að stressa mig geðveikt því nú átti ég að byrja að tala og skrifa fullt af verkefnum!! Svo byrjaði tímin og kennarinn byrjaði að spurja mig allt um mig á spænsku og mín bara skildi allt og svaraði bara eins og innfædd!! Svo í tímanum kom Monika(friends en og aftur) í ljós ég þurfti að berjast við hanna það var eins og ég væri í keppni við hinna að svara hraðast!! Þetta var samt bara gaman og nú hef ég engar áhyggjur!! Því miður gengur japanska vini mínum ekki eins vel og nú eru krakkarnir byrjaðir að glota til mín þegar kennarinn er að reina að tala við hann! ég kann samt ekki við að glota á móti hann kann JAPÖNSKU en ekki við og það er bara cool!!
Eftir skóla fór ég með stelpu sem heitir Vera á kaffihús:) Hún er 22 ára og er frá þýskalandi. Hún er skiptinem og á eftir að vera í ár:) vei!!! Hún býr í borgini og ég má crasha hjá henni þegar við förum að djamma:) Hún býr með einhverjum 3 gaurum svo þetta verður fyndið!!
Það er líka magadans á vegum skólan á sunudögum:) Bara cooool við ætlum að kíkja á það.. svo nú er nóg að gera hjá minni. En ég vona að allir hafi það gott og þangað til næst....................................... ADIOS

Sunday, September 17, 2006

Myndir





Me qusta sushi!!!


Ég var að koma til baka úr matarboði hjá íslensku vinahjónum Amparo og Óskars!! Þau búa 6 km frá Valencia við ströndina:) bara nice þannig meðan var verið að elda ofan í okkur vorum við á ströndini:) Ég fékk í forrétt sushi sem þau bjuggu til sjálf og ég er að seigja ykkur nammi!!!! Það var ein tegund með unagie!! hahaha ég hló og hló smá friends húmor audda!!!! en allavega borðað aðeins of mikið af því nammi namm!!! ég fékk svo æðislega gott snöggsteikt nautakjöt í aðalrétt og svo til að toppa það ís!!! svo lá maður barasta með tærnar upp í loft á meltuni(mynd fyrir ofan)!!!! bara geggjað!!! En þetta er yndislegt fólk og þau buðu mér að koma að vera hjá þeim hvenar sem er og ég ætla auuda að notfæra mér það;)
En nú er ég að reina að læra og ég er orðin nokkuð fljót að fleta í orðabók (þar sem ég þarf að fleta öllu upp!!) en ég hef trú á að þetta komi fljót og kem all bablandi heim um jólin:) en ég hef bara ekkert meira að seigja!!!
adios eskunar mínar

Saturday, September 16, 2006

Me qusta tomar el sol!!

Jamm jamm þetta er búin að vera yndislegur dagur!!! Ég vaknaði um 10 var búin að plana að fara á ströndina og í bíó:) Ég tók lestin það tekur um 15 mín til Cabanyal og rölti niður á strönd í mínum eigin heimi með nýu ástini minni Ipodinum mínum!!!
Ströndin er risa stór og ég mun taka myndir ef ég skelli mér aftur á morgunn:) Éf fann mér kósý stað og flat magaði þar og fann upp nýan liggjandi dans alveg að missa mig!!! Ég lá þarna í svona 4 tíma og ákvað svo að skella mér í ís rölt!! nammi namm fékk mér súkkulaði ís og skoðaði um svæðið og ég var alveg að fíla þetta.
En viti menn þegar ég ætlaði að fara að skella mér í metroin þá fékk ég þær slæmu fréttir að það væri engin mynd með ensku tali í bíóinu sem ég ætlaði í:( ég ætla sko ekki að fara á eitthvað duppað drasl!!! Ákvað þá bara að þetta væri tákn frá Guð að ég æti að fara heim að læra!!!
Þegar ég kom til baka á lestastöðina var 50 mín í næsta bus!!! En mín rölti þá bara heim tók ekki nema 2 tíma:) (fer á bíl héðan í frá) en þetta var yndisleg allt saman og núna ætla ég að fara að elda mér eitthvað:)
Love u

Thursday, September 14, 2006

habla usted espanol

Bara spyr ég byrjaði í skólanum í dag, ég var mætt klukkutíma fyrr! að ég hélt en nobb ég var klukkutíma of sein, Strákur sem skráði mig í tíma klukkan11:10 gleimdi að seigja mér að það verður ekki fyrr en á mánudag!!! En ég fékk að fara inn og hlusta og fæ að hlust aftur á morgun:) En ok ég fór inn í tíman og þetta er fjórði tímin hjá fólkinu sem ég verð með! ok ég fékk hnút í magan því kennslan fer bara fram á spænsku sem er auðvitað best en nú kvíður mér pínu fyrir því það var einn japanskur gaur sem ég held að tali ekki ensku og enga spænsku og þegar hann gat ekki svarað og skildi ekki voru hinni næstum farnir að hlæja!! og ég verð svona í næstu viku!! og verður þá hleigið af okkur og ég og japanski gaurin verðum bestu vinir og teiknum myndir svo við skiljum hvort annað!! so not coooool!!
En þetta hafði ein góð áhrif á mig ég veit hvað ég ætla að gera um helgina!! LÆRA!!! jamm og héðan í frá sem minnst af ensku!!! nú er það bara harkan á þetta!!
En annars líst mér svaka vel á skólan hann er pínu lítil og ekki mikið af fólki og það er víst fínt félagslíf:) Það er einhver hátíð um helgina og kannski maður skelli sér bara með nýju bekkjafélögunum!! Ég og japanski fín saman;) hahaha
En hei það er eins gott að fara að læra...
miss u all!!!!

Tuesday, September 12, 2006

Hummmmmmmm

Hola allir:)

Þá er þetta allt að komast í fastar skorður hérna hjá mér, strákarnir byrjaðir í skólanum og ég fer alveg að byrja:)
Ég er ástfangin af Ipodinum mínum!!! Hvernig datt mér í hug að hlaupa án hans!! Ég vek samt mikla lukku þar sem ég kem skokkandi fram hjá og já líka dansandi!! Ýkt töff!!
Ég fór í eitt af gyminum í gær í þorpinu sem á víst að vera það besta þar, humm kannski árið 1950..... þetta er hola!!! verða munna að taka myndir og setja inn!! World Class I miss u:( en mín fór þá bara í borgina og var bara að skoða og rakst á eitthað svaka gym og spa dæmi mín ákvað að skella sér inn og athuga verðið ennnnn nei það er ekki neitt verð það er tekið niður nafnið þitt og svo þarftu að fara í viðtal!!! ég ætla ekki að seigja ykkur hvaða lúkk ég fékk en ég hefði alveg eins getað verið með skilllti á mér sem stæði á I need mony!!! en ég lét mig bara hverfa!! svo núna fer ég bara út að skokka og ætla bara sjá til hvað ég geri:)
En þið sem eruð búin að vera öfundast á hitanum hjá mér þá skal ég seigja ykkur það að ég svaf ekkert í nótt fyrir þrumum og eldingum!!!! og nokkrum þúsundum lítrum af rigningu!!! þannig í dag er ekki nema 18 stiga hiti!!!
En hei nú þarf ég að vera að lesa smábarna bækurnar sem ég nota til að læra:) mjög sniðug með myndum og orðinu fyrir neðan;)
love u all!!!

Sunday, September 10, 2006

me casa!!!

stigi niður....
arinn inn minn:)
Þar sem ég læri og læri!!! barna bækur!! og púsl!!
sturta, stigi niður, skrifborð
wcið mitt
mitt rúm;)
gluggi voða fín;)

Þetta var bara svo þið sem eruð að hugsa til mín sjáið mig fyrir ykkur betur:)
love u

LoksinS

Hola!!
Ferðin til Spánar gekk rosalega vel fyrir utan þegar ég lent og var að koma út og bjóst við að einhver tæki á móti mér þá var einginn!!!! og ég beið svo beið ég aðeins lengur en svo kom hann Oskar og við lögðum af stað til Turis:)
Turis er lítil bær rétt fyrir utan Valencia og foreldrar Amparo eiga sumarhús þar, við vorum þar í 2 daga og svo fórum við til Formentera sem er lítil eyja við hliðin á Ibiza;) Þar var flatmagað á ströndini og snörklað í sjónum sem var alveg tær!og heitur!!!
Ég fór á hippamarkað eitt kvöldið og það var geðveikt!!! Rosalega flott listaverk og skartgripir, handsaumuð föt geðveikt flott!! og í miðjuni voru 2 að spila og fullt af fólki sat fyrir framn í góðum fíling með jónur!!! Allir á markaðinum voru freðnir!!! en þetta var rosaleg upplifun að sjá þetta svona var þetta bókað á hippa tímabilinu..
Við vorum þar í 5 daga fórum svo aftur til Turis. Svo kom ég hingað á fimmtudaginn seinasta þar sem ég mun búa og þetta er í úthverfi Valencia og heitir Monasterio.
Ég er í herbigji undir súð sem er geðveikt kósý ég er alveg að fíla þetta þori meiri seigja að sofa með ljósin slökkt hérna(aðalega útaf helvítis míflugunum en uss). Ég er með sér baðherbigi með sturtu sem er mjög þægilegt.
Ég fór í fyrsta sinn til Valencia í gær, ég tók lestina og það tekur um 20 mín. Ég var með kort og tók Joey style á þetta I went in to the map haha(Frinds húmor!!! hahah) Ég náði að vitlast aðeins tók ekki nema svona 1 1/2 tíma að komast aftur á réttan stað hefði tekið 5 mín ef ég hefði drullast til að spurja til vegar fyrr!! Ætlaði bara að taka Áslaugar stylin á þetta og bara fara eitthvað þangað til ég fyndi eitthvað sem ég kannaðist við en gafst upp og reyndi að babla eitthvað á spænsku við mann sem talaði EINGA ensku og viti menn ég komst á leiðarenda;)
Þegar ég var búin að lappa um eitthvað af verslunar götunum í 6 tíma ákvað ég að taka taxa í eitt af stærri mölunum. Sem var algjör draumur risa stórt með loftkælingu me like!!!
En þar sem ég er að læra þá skoðað ég bara fötin keypti ekki já þið lásuð rétt ég var að SKOÐA í 8 tíma!! ég keypti bara það sem ég ætlaði mér Ipod. Og þeir sem þekkja mig vita að ég og tæki förum ekki saman!!! ég sit hérna núna með Ipodin minn og spænskar leiðbningar og já það gerist ekkert!!! En einsog vanalega þá bjarga ég mér og Oskar mun bjarga mér!!!
En allavega þetta er nóg í bili;)
Love u all