Wednesday, December 20, 2006

HOLA HEIM HEIM HEIM

yureaf86rfghjklæ.,mnbbnm,
Jamm þið skilduð þetta rétt!! Ég er að koma heim í dag!!!!
Hola todos!!!
Kiss you all sssssssssssoooooooooooonnnnnnnnn!!!!!!
Adios!!!

Tuesday, December 12, 2006

Monday, December 11, 2006

Halló hæ jóla hæ


Ég er búin að vera svo löt við að blogga að það er ekki fyndið!!! En hvað seigið þið humm nú er ég með gleði fréttir ég er að koma heim í næstu viku!!! jamm jamm
En ég er búin að hafa það ekkert smá gott!! Í seinustu viku var nefnilega frí á miðvikudag og föstudag og þar sem host fjölskyldan mín fór í útileigu var ég í fríi!!
Við vorum búin að plana að fara til Agres því 1 fjölskylda 1 vinar míns á hús þar alveg við fjöllin!! Við vorum 14 sem fórum.... Þetta var algjör snild allir þessir strákar eru í samba hljómsveit þannig trommunar voru teknar með!! magnað...
En þegar við komum í húsið tóku mamma og pabbi Santi á móti okkur með paellu sem var elduð yfir eldi inn í matarskálanum!! Þau komu bara til að elda fyrir okkur! Ég var búin að búast við því að þurfa að sofa á gólfinu en nobb það voru 12 rúm á staðnum!!
Eftir að við vorum búin að koma okkur fyrir ákváðum við stelpunar að far að skoða okkur um í bænum meðan strákanir voru að æfa sig ... og vá þetta var eins og klippt út úr bíómynd það var allt svo gamalt og friðsælt...
Þegar við komum til baka létu þeir okkur æfa okkur á trommunar og ég held að við séum fæddar með þvílíka hæfileika hahaha
Við stelpunar vorum í þvílíku dekri þarna okkur var hent út úr eldhúsinu þegar við ætluðum að hjálpa að elda... svona á þetta að vera
Ég verð að seigja að þetta var crazy djamm það var svo geðveik stemming við vorum að spila á trommur og dansandi eins og hálvitar út um allt það var geðveilt gaman svo ef einhver ætlaði að fara að sofa var komið inn í herbergji og hoppað on á þeim múhahahaha
daginn eftir vorum við selpunar vakta með því að þessar elskur komu og vöktu okkur með trommunum sínum þeir fóru úr herbergji í herbergji og vöktu mikla lukku eða hitt þó heldur!! Liðið var sötrandi allan daginn ég og Gjermo vorum ekkert að hafa fyrir því að klæða okkur við kíktum í bæin á náttfötunum fórum á barina þar og fórum að versla inn aðalega áfengi takk fyrir ef ég hefði ekki verið þarna þá held ég að einginn hefði spáð í mat!!!
Þeir tóku okkur svo að skoða hellana sem arabanir hefðu búið til þeir voru með svaka fínum gluggum og allt voða fínt......
Þegar við komu í húsið fórum við í göngutúr upp í fjöllin og auðvitað vildi ég ekki bara fara eftir göngustígnum hvað er gaman við það þannig við komum til baka bláar og rispaðar eftir að ég var búin að draga stelpunar í gegnum þirni og runna hehe úps
Svo var haldið áfram að djamma!!! Svo þegar við stelpunar fórum að sofa og við vorum alveg að sofna réðust þeir inn í herbigji og krömdu okkur vel og vandlega!! og ég er ekki að grínast það voru allir svo fullir að þetta var endurtekið aftur og aftur og aftur og svo brotnaði rúmið og svo brotnaði náttborðið og svo brotnaði glas og svo heltist niður.... þetta var magnað!! Ég Gjermo, Sani og Anna við sátum og kjöftuðum til klukkan 8 bara kósý:)
Híhíhí nú var svo loksins komið að okkur stelpunum að vekja þá og við drifum okkur á fætur og byrjuðum að tromma og tromma múhahahaha en svo fórum við að kíkja á skemmdinar og shit!! marmara vaskurinn inn á baði var brotin það voru glerbrot ít um allt það var klístur út um allt og aska!! matarskálin var í rugli meiri seigja eldunarstæðið var í ruglinu!!! úfff marr hehe og nú kom Monika aftur í ljós og HANANÚ ég rak alla áfram með harðri hendi og á endanum var allt orðið skínandi hreint þá var Johaní þessi elska búin að elda oní okkur og vá ítalar kunna að elda!!! við komum seint á föstudagskvöldinu í bæin og audda fóru strákanir út ég og Jenine gláptum á video og fórum að svo en nobb klukkan 8 á laugardagsmorguninn voru við vaktar upp með þvílíkum látum demm you strákar en þá var svo sem ekki annað að gera en djamma með þeim;)
Um kvöldið var svo matarboð heima hjá Önnu og en og aftur eru það gaurar sem voru í eldhúsinu og í þetta sinn mexíkani og ítali og við fengum geðveikt góðan mexíkóskan mat!! úfffffffff svo var kíkt á djammið og dansað eins og meiníak!!!
Svo var reynt að sofa út í gær!! Það var einginn orka eftir og það var glápt á tv langt fram eftir deigi!!!
Um kvöldið fór ég svo á fundin minn og fór svo heim til Puzol....
En núna ligg ég upp í rúmi og er að spá í að byrja að pakka niður híhíhí ligga ligga lói ég er að koma heim veiiiiiiiiiiiiii
og ég get ekki beðið eftir að koma og sjá hvað allt er jóló heima var sko að tala við mömmsu og pabbsa í gær og við erum sko komin með jólatré:) veiiii veiii veii
núna er míns að fara að pakka hahahahahahahah

Monday, November 27, 2006

Trip to the ZOO

Helgin var æðisleg....
Stelpunar voru búnar að plana suprise dag fyrir mig á laugardaginn...
Þær byrjuðu á því að binda fyrir augun mín og troða headfonum á eyrun. Svo var rölt á stað.. frekar hægt til að byrja með en svo vandist ég þessu og var bara sátt við þetta myrkur... Ég var með eithvað dauða rokk í eyrunum þannig ég heirði ekki mikið.. svo var troðið bandi í hendina á mér og mér var hent á járnhlið og ég fékk loksins sjónina aftur... híhí ég var stödd í zoo með risa stóra blóma blöðru!! Þvílík snild!!
Þetta var frábær dýra garður með ljónum, flóðhestum, krókódílum, nashyrningum, gíröfum, kengúrum, tígrísdýri, leðurblökumog allskonar öpum sem voru í algjöru uppáhaldi hjá mér. Það voru nokkrir litlir apar saman í einu búri og það var pínu lítil rifa undir glerinu og mín byrjaði audda að troða spítum og dóti þarna undir og 1 apin kom alltaf reif í það og hopaði svo alltaf á glerið ég var alveg að missa mig þetta var svo gaman!! Svo var ein risa stór api í einu búri og hann sat upp í tré þegar ég kom svo var ég að geifla mig eithvað hjá honum og þá kom hann niður og setist fyrir framan mig og þetta var eins og í verstu rómó mynd ég seti hendina á glerið og hann sína þetta var sætast og það kom fullt af fólki til að skoða þetta híhí þarna sannaðist það að ég er ein af þeim!!
Eftir þetta fórum við í smá slökun að horðum við á Brokeback mountain... humm já ekki spurja mig en þá er það alavega búið...
Svo til að toppa daginn var farið með mig heim til Önnu og þar var tekið á móti mér með þvílíkri veislu herbigisfélagin hennar Önnu er ítali og hann var búin að baka geðveikt góða spínatböku í forrétt svo fengum við geðveikt laxa pasta í aðalrétt.. og svo byrjuðu allt í einu allir að syngja og Jenine byrtist með barbí ís köku.. þetta var geðveikt... Svo skelltum við okkur á Jazz bar í Carmen og kíktum svo á diskótekin!! Þetta var æðislegt!!!
Á sunnudaginn bauð Javíar (herbigisfélagi Jenien) okkur í piknik rétt fyrir utan borgina það var ekkert smá kosý sátum alveg við á í skóginum og horðum á fiskana hoppa upp úr!! Svo fórum við í smá könnunar leiðangur og fundum strönd og mín stóst ekki mátið og reif skóna af mér og fór að svamla í sjónum!! Bara gaman......
En nú er ég loksins búin að finna enskan AA fund hérna í Valencia og ég fór þanngað um kvöldið og vááá hvað það var magnað..akkurat það sem ég þurfti þannig í dag er ég búin að vera á bleiku skýi og er barasta að springa ég er eit hvað svo happy og það skemmir ekkert fyrir að ég er að koma heim eftir 3 vikur og 2 daga híhí!!
En nú ætlar míns að fara út að skokka
kiss you all later

Tuesday, November 21, 2006

Nú er ég orðin stór stelpa...........

Halló fallega fólk!!
Nú er ekkert smá merkilegur dagur takk fyrir míns á nefnilga ammæli í dag 21 Nóvember!!
Ég er búin að eiga æðislegan dag stelpunar buðu mér út að borða eftir skóla.....
Það er svo sem ekki mikið búið að ske hjá mér mér gengur vel í skólanum og á laugardaginn var mér boðið í mat hjá latino fólki bara geðveikt góður matur og ég talaði spænsku allan tíman!!
En heirru þarf að fara núna fjölskyldan mín ætlar að bjóða mér út að borða!!
Love you all

Sunday, November 12, 2006

Danish hvað.. er ég ekki á Spáni!!

Jeg hedder Áslaug........ Það var setningin sem ég notaði mest í partyinu á Laugardaginn..... Ég var ekki viss hvort danska vinkona mín hafi gefið okkur svefnpilu og farið með okkur í lest til DK þetta var furðulegt 90% af fólkinu voru frá DK. Það voru svona 50 manns troðnir saman í ekkert mjög stóra íbúð og við vorum að hlusta á danska tónlist og fyrir ykkur sem munið svo langt aftur í tíman þegar við vorum látin hlusta á danska tónlist í tíma í skólanum!! þá er þetta ekki töff tungumál... ekki að tala það hvað þá að rappa það!! halló!! Ekki nóg með að að þetta hrognamál ómaði úr hátölurunum heldur voru allir að rappa með..... ef maður þarf einhver tíman að vera fullur þá er það í svona partyum ;) En þetta var mjög nice fólk og ég skemmti mér konunglega og viti menn ég sá loksins gaur sem var hæri en 170 og breiður garin sem átti heima þarna var geðveikt stór og breiður og leit út einsog verst krimmi snoðaður og allur pakkinn hann minti mig bara á Ísland snökkt snökkt................... Um 4 leitið var vinkona mín orðin mjög góð á því virðist vera algengt vandamál nú orðið þegar það er opin bar hahahahaha múhaha þannig það kom aftur í minn hlut að bjarga þessari elsku!! Ég er að seigja ykkur það það eru skilaðoð út um allt fyrir mig til að minna mig á afhverju ég drekk ekki!! múhahahaha Gat ekki verið skýrara þegar ég hélt hárinu á henni frá meðan hún ælti ÖLLU upp;) Og þar sem stelpunar voru frekar þunnar í dag lágum við í hrúgu að glápa á Lord of the rings 3 á spænsku... ok hvað venjulega myndin er 3 tímar en þessi var með einhverju auka dóti og á spáni eru svona 10 auglýsinga hlé þannig það tók rúmlega 4 tíma að horfa á hana!!!
Annars er ekki mikið að frétta fyrir utan já takk fyrir Eva ég er orðin svo húkkt á Weeda að ég skrópaði 1 dag í skólan í seinust viku;) demm ég elska þessa þætti... En það var hvort sem er svo mikil rigning að ég var bara í kúru gír enþá hálf slöpp eftir flensuna góðu sem mamma náði að smita mig af í gegnum Skype!!!
En hef ekkert að seigja en Eva mín ég skal blogga meira ástin mín!!!
Ég sakna ykkar.......
Adios

Saturday, November 04, 2006

Ein tré hæð!!!

Það er ekki mikið búið að vera um hjá mér. Ég er búin að vera veik síðan á Halloween sem var á þriðjudag... held að ég hafi hrætt krakkana í hverfinu meira en þeir mig þegar ég kom til dyra hvítari en kríu skítur með hárið vel túperað eftir koddan minn sem er búin að reynast mér mjög traustur!! Ég leit ekki vel út!! En ég er öll að skána er búin að vera drekka eitthvað undra lyf sem á að redda þessu:)
Ég er búin að hafa það mjög kósý búin að ná mér í One tree hill alveg búin að flatmaga yfir því!! Bara gegjaðir þættir!! Er núna að ná í eitthvað OC:) jibbí Endilega komið með einhverjar hugmyndir fyrir mig ég er alveg tóm í hausnum þegar ég ætla að fara ná í eithvað!!!
Ég held ég hverfi aftur inn í heim snildar afþreyingar TV sem er búiað reynast mér svo traust!! Ég skrifa meira seinna:)
En bara svo þið vitið þá er ég að farast úr söknuði!! Eva mín og Bjössi velkomin heim!! Bössi minn gangi þér vel í prófunum!! Anna mín búhú hvernig væri að kíkja á mig næst þú ert alltaf úti!! Íris mín komin í samband!! til hamingju með það það er eins gott að hann fari vel með þig!! Mamma mín alveg að verða orðin frægur ljósmyndari! Pabbi minn frægt módel! Íris mín orðin frjáls er!! alveg að springa úr stolti!! Ragga babe alveg að brilera í skólanum! Gunni minn er horfin!! allt að breitast......... jæja en hvað um það...................... bless í bili
Yfir og út

Monday, October 30, 2006

todo bien........

nice!!
Chile con carne! nammi namm

Heima hjá Evu


Í dag eru 2 mánuðir síðan fór út:) Vá hvað tímin er fljótur að líða!! Núna er 51 dagur þangað til að ég kem heim!! Veiii!!! jibbí!!
Það er búið að vera nóg að gera hjá mér seinustu viku.Á mánudaginn keirðum við stelpunar Sylvain(kærasti Evu) á völlinn því liðið hans var að fara að keppa í Madrid. Við vorum eins og mestu gelgjur þegar allir fótbolta gauranir voru að koma og sem betur fer voru svartar rúður á jeppanum því sjónvarpið var þarna. Og Sylvain hefði drepið okkur ef við hefðum sést láta eins og kjánar.. en Anna vildi bíða eftir að rútan færi.. Þannig við litum út eins og mestu grúbíur!! híhí

Ég fór audda í skólan en á miðvikudaginn fórum við stelpunar að hjálpa Evu að flytja... úfff maður brjálað að gera hjá okkur eða þannig;) Hún kom að sækja okkur um 11 við fórum að versla í hádeigismat handa okkur og það var allt í boði kærasta hennar...jibbí við keiptum allt sem okkur langaði í!!! Þegar við komum í húsið sáum við að það var svo sem ekkert sem við gátum gert en vorum í svona klukkutíma að gera kosý fyrir matinn;) Svo var tekin spænski stílin á þetta og ég held að við höfum verið að borða í 3 tíma!! En þetta var rosalega flott hús og vá ertu að grínast þau eiga stærsta sófa sem ég hef séð!!! En við ætlum að hjálpa henni meira þegar það eru komnir skápar.......
Helgin var frekar róleg við kíktum í party og ég er að seigja ykkur það íbúðin var geðveik strákurin sem hélt partyið var ný búin að kaupa þessa íbúð, konan sem bjó þarna var ný dáin... En íbúðin er alveg í hjarta Valencia og hún er á efstu hæð og já það eru 7 eða 8 stór herbigji stór stofa þar sem var Dj 2 svalir það var bar á öðrum þeira.... Risa stórt eldhús og 2 baðherbigji allavega. Ég og Anna ákváðum að skoða okkur um og við opnuðim eitt herbigið og það var ekkert smá crepy þar inn var bara skápur og 1 stóll með eld gamalli dúkku á. Dúkkan var með alveg svört augu og hún var geðveikt spúkí!! Til að byrja með var Djin ömurlegur en Javíar hringdi í vin sinn sem er Dj og hann kom og þá varð mun meiri steming:) Þetta varð svolítið undarlegt party því það byrjuðu allir að klæða sig í fötin af gömlu konuni sem var DÁIN og hún hafði greinilega verið mjög rík og snobbuð því allt partyið var komin í dragtar jakka eða pyls.... þetta var bara fyndið en ég kom mér bara ekki í að fara í fötin hennar sérstaklega ekki eftir að hafa séð dúkkuna!! Mæti halda að hún hafi andsetið partyið!!!
En þar sem vinkona mín fór aðeins yfir strikið..hehe það vill gerast þegar það er opin bar þá þurfti ég að plata hana úr partyinu og heim....
Í gær náði ég svo að hefna mín á henni með að vekja hana frekar snemma og draga hana á ströndina:) múhahaha Hefði kannski átt að bera á mig sólarvörn!! En ég er íslendingur ég bjóst ekki við að brenna 29 okt!! Þannig í dag er ég með mjög fallegt raut andlit:)

Svo um kvöldið elduðum við (ég og Anna) fyrir meðleigjendur hennar annar er spænskur og hinn er ítalskur. Við elduðum chilie con carne og þar sem við báðar elskum sterkan mat var mjög mikið CHILE. Spánverjar eru ekki mjög vanir spice mat... við setjum matinn á borðið ásamt chile sósu spánverjin fær sér á diskin og án þess að smaka setur hann chile sósuna yfir matin.. ég og Anna glotum báðarHíHí svo sjáum við hann verða rauðari og rauðari og byrja að svitna!!! og hann er að reina að halda andliti en gefst upp og spyr hvor hann meigi fá sér nýan disk hahahah
En þetta var svakalega gott og mátulega sterkt!!!
Ég ákvað svo að fara heim eftir kvöld mat.. sem var um rétt fyrir 9 ég var komin til Puzol um 9:30 og fataði að það væri eingin strætó:( Þá bað ég stelpuna á lestar stöðini að hringja á taxa fyrir mig!! En viti menn það eru bara 3 taxa bílstjórar í Puzol og þeir vinna bara þegar þeim sínist og eingin af þeim var að vinna í gærkvöldi:( Ég hringdi í Amparo(mamman sem ég bí hjá) en hún var ein heima og strákanir sofnaðir!! Ég ætlaði að fara að reina að húka mér far en þá sagði stelpan mér að bíða.. Hún hringdi í einhvern vin sinn og bað hann um að skutla mér:) Svo kom þessi elska og ég þakkaði þeim innilega fyrir að bjarga mér!! Hann heitir Francisco og er geðveikt fín við reindum að tala saman og fundum svo út að við erum með sömu ástríðu fyrir Trans og house músik og hann varð svaka spenntur að leifa mér að hlusta á diskana sína!! En hann ætlar að sína mér góða staði með góðri tónlist fljótlega!!

Hef ekkert meira að seigja..........

Love you all





Wednesday, October 25, 2006

Nokkrar myndir

Sko það rignir á Spáni Safn sem er í garðinum... áni


Við stelpunar á leið í piknik

í garðinum Lindsay og Anna og ég







Við að skoða safnið að utan:)







Humm í Barcelona....
Þessi mynd var tekin því Anna var á kortinu og átti að fara með okkur að skoða Gaudi kirkjuna en ruglaðist og labbaði með okkur í Gaudí garðin... tók aðeins 3 tíma!!! ætluðum að taka metro dagin eftir en nobb!! En var þess virði;)



















Furðulegir lisa menn en þeir geta gert magnaða hluti!!
Ég og Anna í Gaudí garðinum á bekkjunum frægu..













Ekkert smá flottur staður fórum þanngað á sunnudagskvöldinu í Barcelona lágum þarna í hrú og vorum að spjalla:) Eva mín þú hefðir elskað þennan stað!!



















Hostelið sem við vorum á var alveg að fíla það!














Sko við erum túristar...mikið glápt á okkur samt nánast bara túristar í Barcelona
















Við ný komin til Barcelona að reyna að finna Hostelið:)












Monday, October 23, 2006

Piknik....djammm..ahhhhhh!!

Hola fallega fólk!!
Seinasta vika var alveg frábær:) Ég og 3 vinkonur mínar ákváðum að fara í piknik seinasta miðvikurdag og nýta seinustu dagana af góðri sól:) Við keiptum fullt af mat og fórum í garðin sem er 11 km langur ekkert smá flottur!! Þetta var á sem þornaði upp og hún er svona í boga kringum Valencia!! Spánverjar eru kannski ekki vanir að sjá 4 stelpur undir tré í piknik og drekka á miðvikurdeigi!! Þannig við fengum verðskuldaða athygli!
Þetta var alveg frábært ætluðum að labba garðin en enduðum á að sita mest allan tíman og kjafta!! En við ákváðum að endurtaka leikin á fösturdaginn því Lindsay var að yfirgefa okkur á Laugardaginn var:( ekki gaman henni var hent út, hún var au-pair og var hjá einstæðri klikaðri spænskri konu sem henti henni út því hún fór með okkur til Barcelona því hún gat ekki gefið hundinum að borða á laugardags morgnni!! og hún átti ekki að vera að vinna um helgar!! en hvað um það við áttum allavega frábæran dag og við ætlum að heimsækja Lindsay í Texas við tækifæri:)
Ég kíkti á djammið um helgina... byrjuðum á að elda saman. Fórum svo að hitta gaurin sem Jenine býr með hann er í Samba hljómsveit og við hittum þá alla ásamt fullt af fólki sem höfðu verið í mótmæla göngu....þannig það var gegjað stuð þeir voru að spila inn á veitingar staðnum BRJÁLUÐ læti!! En svo þegar veitingarstaðurinn lokaði kíktu við á clúb sem heitir Mama Afrika.. og ja humm ef þið haldið að svertingjanir á Íslandi sé slæmir á djamminu þá Guð hjálpi mér hér!!! Strákanir voru í því að bjarga okkur frá þeim allt kvöldið... og dansanir voru svo grófir að maður fór hjá sér!! En við stelpunar drifum okkur heim um 5 þegar gauranir voru orðnir svo fullir að það tók þá svona 2 tíma að taka 2 skref!!
Í gær var bara róleg heit ég ákvað að gista í Valencia svo ég gæti horft á leikinn með krökkunum... og Barcelona tapaði:( búhú ég var eina á staðnum sem hélt með Barcelona og það var horft mjög illilega á mig þegar ég var að hvetja okkar mann áfram!! en hvað get ég gert við erum lítil þjóð og við látum bara svona ef íslendingur er í liðinu alltaf þegar hann Eiður minn sást var ég þetta er hann, hann er sko íslendingur!! já ég veit lúði en hei ég er ekki ein um þetta!!! en þetta var góður leikur...þannig séð!!
En jæja ég þarf víst að fara í skólann:)
Love u all!!

Sunday, October 15, 2006

The line is a . to spanish boys!!

Hola!!
Þá var mín að koma frá Benidorm!!! Ég átti að fara á fösturdag en þar sem au pair fólkið var að fara að hitta vina fólk sitt þá var ákveðið að ég kæmi í rútu á laugardeiginum;)
Ég var komin til Benidorm klukkan 4 og fór á ströndina......
hitti þau svo um 19:30 og ég tók strákana því þau voru að fara á tónleika...
Þegar ég kom á hótelið átta að vera komið auka rúm fyrir mig en nobb þannig að mín hringdi og bað þau um að koma með rúmið!!
Sko spænskir strákar þið eruð crazy!!! Það kom strákur með rúmið mitt og það tók mig svona klukku tíma að losna við hann. samtalið var um þetta 1. þú ert sæt aftur og aftur 2. áttu kærasta 3. er ég sætur 4. ég og þú kærustupar!!!!! halló ég var að hitta þig þú talar bara spænsku og ég ekki svo mikið!! ok fínt hann fór svo loksins svo fór ég bara að sofa.... eftir klukku tíma var bankað!! ég vildi ekki opna þannig ég sagði ekki neitt!!! en þá var hurðin opnuð!!! og hann kom inn!!! ertu að grínast hvað er að ég get látið reka þig!!! En þessi gaur var komin með blóm og nammi handa mér!! Ég henti honum öfugum út og setti stól fyrir dyrnar!!! sko það er 1 að tala við mann ef maður rekst á hann en að opna hurðina come on!! Ég varð brjáluð og ég er en brjáluð þið eruð CRAZY!!! en mér finnst þetta einum of!!! en ykkur?
En ég átti alveg frábæran dag með þeim fórum í lítið þorp rétt fyrir utan Benidorm þar var sjórin alveg tær og pínu lítil strönd og ekki mikið af fólki þetta var alveg yndislegt!! Svo var mín bara að koma heim núna:) En ég ætla að taka upp úr töskuni minni!!
Adios elskunar mínar!!

Wednesday, October 11, 2006

Könnun

Stal þessu frá Gunna sem stal þessu frá Auði................

1. Hver ert þú?
2. Erum við vinir?
3. Hvenær hittumst við fyrst og hvernig?
4. Ertu hrifin/nn af mér?
5. Langar þig að kyssa mig?
6. Láttu mig hafa gælunafn og útskýrðu afhverju þú valdir það.
7. Lýstu mér í einu orði.
8. Hvernig leist þér á mig þegar þú sást mig fyrst?
9. Lýst þér ennþá þannig á mig?
10. Hvað minnir þig á mig?
11. Ef þú gætir gefið mér eitthvað hvað myndi það vera?
12. Hversu vel þekkiru mig?
13. Hvenær sástu mig síðast?
14. Hefur þig einhvern tímann langað til að segja mér eitthvað en ekki getað það?
15. Ætlaru að setja þetta á bloggið þitt svo ég geti skrifað um þig?

love u all

Monday, October 09, 2006

Barcelona!!!

Ég var að lenda heima eftir frábæra helgi í Barcelona:) Ég fór með krökkum úr skólanum, Anna, Lindsay, Janine og Rayan hann er vinur Janine.
Víð tókum rútu frá Valencia klukkan 10:00 á laugardaginn og skemmtum okkur konunglega á leiðinni að horfa á einhverja hasar mynd með engu hljóði(það er mun skára en þetta dubb kjaftæði) ferðin tók rúmlega 4 tíma og svo tókum við metro á hostelið;)
Þetta var ekkert smá töff hostel við vorum í herbergi með 12 rúmum og ég var á efri hæð við gluggan á besta stað:) Ég var allveg að fíla mig þarna hittum fullt af krökkum sem voru á bakpokaferðalagi og ég er að segja ykkur það ég ætla í svoleiðis það er bara magnað!!
Við eyddum laugardeginum í að skoða okkur um löbbuðum niður á höfnina og sátum þar og þau drukku....... um kvöldið var svo skellt sér í djamm gallan og kíkt út á lífið.. fundum flottasta diskóið sem var frekar stórt á 2 hæðum við þurftum að bíða í langri röð í smá úða en það var allt í góðu enda ekki slæmur staður fín tónlist og svo var dansað alla nóttina!!
Mín ætlaði sko ekki að eyða tímanum í að sofa í Barcelona þannig að ég reif bittunar á fætur um 9 og við fengum okkur morgunmat sem fylgdi með herberginu!! ertu að grínast ég borgaði 38 evrur fyrir 2 nætur með morgunmat!!!! magnað!!
Við ákváðum að fara að skoða Gaudí byggingar og ætluðum svo að enda á kirkjunnu sem þeir eru ennþá að byggja!! en þegar við vorum búin að skoða byggingarnar og þetta átti að vera svona 20 mínútur í viðbót þangað til við kæmum að kirkjunni!! en nobb gáfnaljósið sem var á kortinu var að fara með okkur bara á eitthvað sem var búið að merkja við( sem var metro stoppu stöðin sem við áttum að fara út til að fara í Gaudi garðinn daginn eftir!) eftir að vera búin að rölta í 2 tíma föttuðum við það!!! dööö en þar sem við vorum næstum komin í garðinn þá héldum við bara áfram:) góð æfing!!! Garðurinn var geðveikt flottur og þetta rölt var alveg þess virði þegar við skoðum hann!! en við tókum metroinn til baka!! og drifum okkur út að borða;)
Um kvöldið fórum við á ekkert smá flottan stað í svona indverskum þema þannig við sáttum upp á palli umkringd púðum og þarna lágum við ásamt einhverjum gaur frá India sem við hittum á Hostelinu og spjölluðum;)
á mánudagsmorgunn reif ég liðið á fætir um 8 fengum okkur morgunmat og fórum svo að skoða kirkjuna:) jibbí tók bara 1 tíma að rölta þanngað!! eftir það var bara rölt um og notið þessa að skoða þessa fallegu borg!! Ég mæli með að þið kíkið við tækifæri því hún er full af lífi það eru listamenn út um allt að gera magnaða hluti ef þeir er ekki að spila tónlist eða syngja þá eru þeir að gera ótrúlgar æfingar að standa á höndum 2 saman og halda hvor öðrum uppi æji þið skiljið mig þegar ég set myndir:) en nú er ég orðin mjög þreytt! Góða nótt!!
love u all

Tuesday, October 03, 2006

Myndir

ég að deija úr hlátri og já læknir upp í tré
ég og dyravörður og breti
dauður læknir fékk svo piss yfir sig, ojjjj
kemst stiga maðurinn í gegn!! nobb þótt að læknirinn hjálpi!
læknir og stiga maður í smá leik!
2 læknar!
stiga maðurinn að klifra í tré!!
Ég og Anna
við á barnum
Ég á djamminu
sexy! þessi bír til stiga

Crazy helgi!!

Ég átti frábæra helgi!! Ég fór á ströndina á laugardaginn með Önnu( hún er dönsk og er í bekknum mínum) við ákváðum að kíkja á djammið um kvöldið en hún þurfti fyrst að fara í matarboð... en allavega ég fór fyrst að hitta Veru og við fórum á pöparölt.
Svo kom Anna og við stungum af..... við vildum fara að dansa!!! við hittum breta og þeir byrjuðu að rugla í okkur og ég er ekki að djóka við pissuðum næstum í okkur úr hlátri!! þeir komu svo með okkur á djammið og hafið þið einhver tíman séð breta dansa!! ertu að grínast hahahaha ég ætla að kalla þetta monky dans því þeir hoppuðu af og til í hringi!! en þau öll voru frekar dugleg við drykkjuna og um 06:30 ákvaðð ég að stinga af:) fékk bara lyklana heima hjá Önnu og fór þángað að sofa:)
Þegar klukkan var orðin 11 og Anna ekki komin heim og símin minn dauður var ég alveg að fríka út!! en svo kom þessi elska loksins heim klukkan 13:30 og ég dró hanna á ströndina þar sem hún hraut allan daginn:) híhí
Já og annað þetta voru 25 bretar og þeir voru að stegja vin sinn!! hvað er málið eru allir að fara að gifta sig!! En þeirr vildu endilega hitta okkur á sunnudeiginum og við sáttum með þeim á bar við ströndina en sem betur fer fóru flest allir af þeim á fótboltaleik eftir smá stund!! En þetta var algjör snild þetta eru allt læknar, og einn banka maður og einn gaur sem bír til stigana sem maður notar til að komast upp í flugvél!! og eftir að hafa djammað með þeim þá er ég að seigja ykkur það þetta er mest ruglaðasta lið sem ég hef nokkur tíman hitt!! ég tók myndir og ætla að setja þær hérna inn. og ég er með grjót harða magavöðva eftir að hafa hleigið svona mikið!! en þetta er allt svon had to be there dæmi þannig ég ætla ekki að eiða plási í þetta rugl ég læt myndirnar duga!!
en klukkan er orðin margt skrifa meira seinna:)
og já ég er að fara til Barcelona um helgina veiiiiiii!!
Love u

Sunday, September 24, 2006

Myndir

í rauð bikiníi er Vera, svo er Claudia og Marko
Bolurinn frægi sem ég fékk
Mín á leið á djammið á laugardaginn

Party time:)

Þá kom loksins að því að stelpan fór á djammið hérna!!! Ætlaði nú ekki að nenna því það var búin að vera gegjuð rigning allan daginn og mín var bara í kósý fíling:) En svo hringdi Anna í mig og náði að plata mig út:)
Þegar ég kom á lesta stöðina var þar hópur af strákum sem voru að steggja vin sinn og fengu mig til að kissa hann á kinnina!! ég var svona létt að fíla að rugla í þeim og þeir gáfu mér þennan fína bol með mynd af steggnum:) Þetta var svo frekar fyndin leið til Valencia 1 stelpa með 16 gaura í kringum sig og bara 3 töluðu spænsku þannig þeir voru á fullu að þíða allt ruglið fyrir hinna.. fólk glápti mikið!!! En þetta eru fínir gaurar og ég tók númerið hjá þeim og við ætlum að djamm saman:)
Ég fór heim til Önnu og við skelltum okkur svo út að borða. Eftir mat fórum við að rölta á milli staðana og leita að réttu tónlistini. Við hittum svo aðra bekkjasystir okkar og hún var með einhverjum 2 þýskum gaurum og við djömmuðum saman:)
En það kom mér ekkert smá á óvar hvað fólk er yndislegt!! við vorum á einum stað að dansa og ég var alveg að pissa á mig og klóstið var ekki beint geðslegt og ég skal seigja ykkur það þegar maður er edrú þá lætur maður sig ekki bara hafa það!!! en allavega ég ætlaði að hlaupa á næsta stað til þess að pissa en þá sögðu 2 norskar stelpur sem við höfðum hitt að ég gæti bara tekið lyklana af íbúðini þeirra og farið þangað að pissa!! Bara nice íbúðin var beint á móti staðnum sem við vörum á þannig ég var mjög þakklát:) svo buðu þær mér líka í party eftir 2 vikur:) frábærar stelpur ætla að taka myndavél með næst til að geta sínt ykkur myndir:)
En svo var maður bara alveg búin um 5 og ég og Anna tókum leigubíl heim til hennar og láum bara upp í rúmi að tala til 7:)
Svo vaknaði maður um 10 leið einsog ég væri þunn!!! ósangjarnt ég hélt ég ætti að vera laus við það drasl núna!! En við drifum okkur á ströndina og ég lá þar einsog klessa til klukkan 6 ahhhhhhhhh I love it!! svo fékk ég mér bara ís nammi namm og dreif mig svo heim:)
Það er svo frábært fólk hérna ég má sofa allstaðar og allir eru bara eitthvað svo afslappaðir þetta er bara gegjað!!! mæli með að þið kíkið á mig fallega fólk!! væri bara gaman!!
Love u all!!!

Wednesday, September 20, 2006

nei Hellllú;)

Jæjá já mín ætlaði að vera svaka dugleg áðan og horfa á sænskt sjónvarp!! En nobb mín fann einu enskustöðina í tvinu!!! þannig ég horfði bara á handlaginheimilis faðir í góðum fíling:)
En annars er ég búin að eiga frábæran dag!! Ég fór í skólan og lærði fullt af sniðugum orðum...
Svo fór ég og Vera á ströndina komum við á litlum krúttlegum take away stað með geðveikt góðum heimatilbúnum spænskum mat!! og kostar bara 2,90 evrur!!
Svo hittum við nokkra krakka á ströndini flestir frá þýskalandi og ein hollensk stelpa allt alveg æðslegir krakkar!! Þau höfðu öll svaka áhuga á Íslandi og ein hélt að við værum með hunda sleða!! hvað er málið líkist ég eskimóa!!!!Þau reyndu svo að tala íslensku!! En nei ekki séns!! En allavega ég ætla kíkja á djammið með þeim um helgina;)
Ég lenti samt í frekar óþægilegu dæmi í dag, ég var að ná í strákana í skólan og er að koma þeim inn í bílinn, þá keirir einhver kall upp að mér og byrjar að babla eitthvað ég seigist ekki tala spænsku og týpíst eini spánverjin sem ég hef hitt sem talar smá ensku er þetta gerpi!! en hann var að spurja hvort að þetta væru börnin mín og hvort ég væri þarna alltaf á þessum tíma!!!! Frekar óþægilegt hann var eitthvað svo spúkí ég var hrædd um að hann mundi elta mig heim!!!
Ef hann er þarna á morgunn ætla ég á fara æfa box!!!
En nú er komin lúlu tími hjá mér:)
Góða nótt

Monday, September 18, 2006

Monika kom í ljós!!

Ég fór í skólan í dag... var búin að stressa mig geðveikt því nú átti ég að byrja að tala og skrifa fullt af verkefnum!! Svo byrjaði tímin og kennarinn byrjaði að spurja mig allt um mig á spænsku og mín bara skildi allt og svaraði bara eins og innfædd!! Svo í tímanum kom Monika(friends en og aftur) í ljós ég þurfti að berjast við hanna það var eins og ég væri í keppni við hinna að svara hraðast!! Þetta var samt bara gaman og nú hef ég engar áhyggjur!! Því miður gengur japanska vini mínum ekki eins vel og nú eru krakkarnir byrjaðir að glota til mín þegar kennarinn er að reina að tala við hann! ég kann samt ekki við að glota á móti hann kann JAPÖNSKU en ekki við og það er bara cool!!
Eftir skóla fór ég með stelpu sem heitir Vera á kaffihús:) Hún er 22 ára og er frá þýskalandi. Hún er skiptinem og á eftir að vera í ár:) vei!!! Hún býr í borgini og ég má crasha hjá henni þegar við förum að djamma:) Hún býr með einhverjum 3 gaurum svo þetta verður fyndið!!
Það er líka magadans á vegum skólan á sunudögum:) Bara cooool við ætlum að kíkja á það.. svo nú er nóg að gera hjá minni. En ég vona að allir hafi það gott og þangað til næst....................................... ADIOS

Sunday, September 17, 2006

Myndir





Me qusta sushi!!!


Ég var að koma til baka úr matarboði hjá íslensku vinahjónum Amparo og Óskars!! Þau búa 6 km frá Valencia við ströndina:) bara nice þannig meðan var verið að elda ofan í okkur vorum við á ströndini:) Ég fékk í forrétt sushi sem þau bjuggu til sjálf og ég er að seigja ykkur nammi!!!! Það var ein tegund með unagie!! hahaha ég hló og hló smá friends húmor audda!!!! en allavega borðað aðeins of mikið af því nammi namm!!! ég fékk svo æðislega gott snöggsteikt nautakjöt í aðalrétt og svo til að toppa það ís!!! svo lá maður barasta með tærnar upp í loft á meltuni(mynd fyrir ofan)!!!! bara geggjað!!! En þetta er yndislegt fólk og þau buðu mér að koma að vera hjá þeim hvenar sem er og ég ætla auuda að notfæra mér það;)
En nú er ég að reina að læra og ég er orðin nokkuð fljót að fleta í orðabók (þar sem ég þarf að fleta öllu upp!!) en ég hef trú á að þetta komi fljót og kem all bablandi heim um jólin:) en ég hef bara ekkert meira að seigja!!!
adios eskunar mínar

Saturday, September 16, 2006

Me qusta tomar el sol!!

Jamm jamm þetta er búin að vera yndislegur dagur!!! Ég vaknaði um 10 var búin að plana að fara á ströndina og í bíó:) Ég tók lestin það tekur um 15 mín til Cabanyal og rölti niður á strönd í mínum eigin heimi með nýu ástini minni Ipodinum mínum!!!
Ströndin er risa stór og ég mun taka myndir ef ég skelli mér aftur á morgunn:) Éf fann mér kósý stað og flat magaði þar og fann upp nýan liggjandi dans alveg að missa mig!!! Ég lá þarna í svona 4 tíma og ákvað svo að skella mér í ís rölt!! nammi namm fékk mér súkkulaði ís og skoðaði um svæðið og ég var alveg að fíla þetta.
En viti menn þegar ég ætlaði að fara að skella mér í metroin þá fékk ég þær slæmu fréttir að það væri engin mynd með ensku tali í bíóinu sem ég ætlaði í:( ég ætla sko ekki að fara á eitthvað duppað drasl!!! Ákvað þá bara að þetta væri tákn frá Guð að ég æti að fara heim að læra!!!
Þegar ég kom til baka á lestastöðina var 50 mín í næsta bus!!! En mín rölti þá bara heim tók ekki nema 2 tíma:) (fer á bíl héðan í frá) en þetta var yndisleg allt saman og núna ætla ég að fara að elda mér eitthvað:)
Love u

Thursday, September 14, 2006

habla usted espanol

Bara spyr ég byrjaði í skólanum í dag, ég var mætt klukkutíma fyrr! að ég hélt en nobb ég var klukkutíma of sein, Strákur sem skráði mig í tíma klukkan11:10 gleimdi að seigja mér að það verður ekki fyrr en á mánudag!!! En ég fékk að fara inn og hlusta og fæ að hlust aftur á morgun:) En ok ég fór inn í tíman og þetta er fjórði tímin hjá fólkinu sem ég verð með! ok ég fékk hnút í magan því kennslan fer bara fram á spænsku sem er auðvitað best en nú kvíður mér pínu fyrir því það var einn japanskur gaur sem ég held að tali ekki ensku og enga spænsku og þegar hann gat ekki svarað og skildi ekki voru hinni næstum farnir að hlæja!! og ég verð svona í næstu viku!! og verður þá hleigið af okkur og ég og japanski gaurin verðum bestu vinir og teiknum myndir svo við skiljum hvort annað!! so not coooool!!
En þetta hafði ein góð áhrif á mig ég veit hvað ég ætla að gera um helgina!! LÆRA!!! jamm og héðan í frá sem minnst af ensku!!! nú er það bara harkan á þetta!!
En annars líst mér svaka vel á skólan hann er pínu lítil og ekki mikið af fólki og það er víst fínt félagslíf:) Það er einhver hátíð um helgina og kannski maður skelli sér bara með nýju bekkjafélögunum!! Ég og japanski fín saman;) hahaha
En hei það er eins gott að fara að læra...
miss u all!!!!

Tuesday, September 12, 2006

Hummmmmmmm

Hola allir:)

Þá er þetta allt að komast í fastar skorður hérna hjá mér, strákarnir byrjaðir í skólanum og ég fer alveg að byrja:)
Ég er ástfangin af Ipodinum mínum!!! Hvernig datt mér í hug að hlaupa án hans!! Ég vek samt mikla lukku þar sem ég kem skokkandi fram hjá og já líka dansandi!! Ýkt töff!!
Ég fór í eitt af gyminum í gær í þorpinu sem á víst að vera það besta þar, humm kannski árið 1950..... þetta er hola!!! verða munna að taka myndir og setja inn!! World Class I miss u:( en mín fór þá bara í borgina og var bara að skoða og rakst á eitthað svaka gym og spa dæmi mín ákvað að skella sér inn og athuga verðið ennnnn nei það er ekki neitt verð það er tekið niður nafnið þitt og svo þarftu að fara í viðtal!!! ég ætla ekki að seigja ykkur hvaða lúkk ég fékk en ég hefði alveg eins getað verið með skilllti á mér sem stæði á I need mony!!! en ég lét mig bara hverfa!! svo núna fer ég bara út að skokka og ætla bara sjá til hvað ég geri:)
En þið sem eruð búin að vera öfundast á hitanum hjá mér þá skal ég seigja ykkur það að ég svaf ekkert í nótt fyrir þrumum og eldingum!!!! og nokkrum þúsundum lítrum af rigningu!!! þannig í dag er ekki nema 18 stiga hiti!!!
En hei nú þarf ég að vera að lesa smábarna bækurnar sem ég nota til að læra:) mjög sniðug með myndum og orðinu fyrir neðan;)
love u all!!!

Sunday, September 10, 2006

me casa!!!

stigi niður....
arinn inn minn:)
Þar sem ég læri og læri!!! barna bækur!! og púsl!!
sturta, stigi niður, skrifborð
wcið mitt
mitt rúm;)
gluggi voða fín;)

Þetta var bara svo þið sem eruð að hugsa til mín sjáið mig fyrir ykkur betur:)
love u

LoksinS

Hola!!
Ferðin til Spánar gekk rosalega vel fyrir utan þegar ég lent og var að koma út og bjóst við að einhver tæki á móti mér þá var einginn!!!! og ég beið svo beið ég aðeins lengur en svo kom hann Oskar og við lögðum af stað til Turis:)
Turis er lítil bær rétt fyrir utan Valencia og foreldrar Amparo eiga sumarhús þar, við vorum þar í 2 daga og svo fórum við til Formentera sem er lítil eyja við hliðin á Ibiza;) Þar var flatmagað á ströndini og snörklað í sjónum sem var alveg tær!og heitur!!!
Ég fór á hippamarkað eitt kvöldið og það var geðveikt!!! Rosalega flott listaverk og skartgripir, handsaumuð föt geðveikt flott!! og í miðjuni voru 2 að spila og fullt af fólki sat fyrir framn í góðum fíling með jónur!!! Allir á markaðinum voru freðnir!!! en þetta var rosaleg upplifun að sjá þetta svona var þetta bókað á hippa tímabilinu..
Við vorum þar í 5 daga fórum svo aftur til Turis. Svo kom ég hingað á fimmtudaginn seinasta þar sem ég mun búa og þetta er í úthverfi Valencia og heitir Monasterio.
Ég er í herbigji undir súð sem er geðveikt kósý ég er alveg að fíla þetta þori meiri seigja að sofa með ljósin slökkt hérna(aðalega útaf helvítis míflugunum en uss). Ég er með sér baðherbigi með sturtu sem er mjög þægilegt.
Ég fór í fyrsta sinn til Valencia í gær, ég tók lestina og það tekur um 20 mín. Ég var með kort og tók Joey style á þetta I went in to the map haha(Frinds húmor!!! hahah) Ég náði að vitlast aðeins tók ekki nema svona 1 1/2 tíma að komast aftur á réttan stað hefði tekið 5 mín ef ég hefði drullast til að spurja til vegar fyrr!! Ætlaði bara að taka Áslaugar stylin á þetta og bara fara eitthvað þangað til ég fyndi eitthvað sem ég kannaðist við en gafst upp og reyndi að babla eitthvað á spænsku við mann sem talaði EINGA ensku og viti menn ég komst á leiðarenda;)
Þegar ég var búin að lappa um eitthvað af verslunar götunum í 6 tíma ákvað ég að taka taxa í eitt af stærri mölunum. Sem var algjör draumur risa stórt með loftkælingu me like!!!
En þar sem ég er að læra þá skoðað ég bara fötin keypti ekki já þið lásuð rétt ég var að SKOÐA í 8 tíma!! ég keypti bara það sem ég ætlaði mér Ipod. Og þeir sem þekkja mig vita að ég og tæki förum ekki saman!!! ég sit hérna núna með Ipodin minn og spænskar leiðbningar og já það gerist ekkert!!! En einsog vanalega þá bjarga ég mér og Oskar mun bjarga mér!!!
En allavega þetta er nóg í bili;)
Love u all

Tuesday, August 29, 2006

Last day:(

Halló hæ

Sitjum heima hjá Bössa og Evu og litli brósi er hér (Gunni fyrir þá sem ekki þekkja til). Ég og Gunni látum einsog vanalega... baráttan um sófann heldur áfram hann er með yfirhöndina einsog er!! En ég ætla ekki að eyða seinasta kvöldinu á Íslandi í að reyna að blogga eithvað bull... kem með ferðasöguna þegar ég er búin að koma mér fyrir.

Og bless bless allir sem ég náði ekki að kveðja:)