Ég var að lenda heima eftir frábæra helgi í Barcelona:) Ég fór með krökkum úr skólanum, Anna, Lindsay, Janine og Rayan hann er vinur Janine.
Víð tókum rútu frá Valencia klukkan 10:00 á laugardaginn og skemmtum okkur konunglega á leiðinni að horfa á einhverja hasar mynd með engu hljóði(það er mun skára en þetta dubb kjaftæði) ferðin tók rúmlega 4 tíma og svo tókum við metro á hostelið;)
Þetta var ekkert smá töff hostel við vorum í herbergi með 12 rúmum og ég var á efri hæð við gluggan á besta stað:) Ég var allveg að fíla mig þarna hittum fullt af krökkum sem voru á bakpokaferðalagi og ég er að segja ykkur það ég ætla í svoleiðis það er bara magnað!!
Við eyddum laugardeginum í að skoða okkur um löbbuðum niður á höfnina og sátum þar og þau drukku....... um kvöldið var svo skellt sér í djamm gallan og kíkt út á lífið.. fundum flottasta diskóið sem var frekar stórt á 2 hæðum við þurftum að bíða í langri röð í smá úða en það var allt í góðu enda ekki slæmur staður fín tónlist og svo var dansað alla nóttina!!
Mín ætlaði sko ekki að eyða tímanum í að sofa í Barcelona þannig að ég reif bittunar á fætur um 9 og við fengum okkur morgunmat sem fylgdi með herberginu!! ertu að grínast ég borgaði 38 evrur fyrir 2 nætur með morgunmat!!!! magnað!!
Við ákváðum að fara að skoða Gaudí byggingar og ætluðum svo að enda á kirkjunnu sem þeir eru ennþá að byggja!! en þegar við vorum búin að skoða byggingarnar og þetta átti að vera svona 20 mínútur í viðbót þangað til við kæmum að kirkjunni!! en nobb gáfnaljósið sem var á kortinu var að fara með okkur bara á eitthvað sem var búið að merkja við( sem var metro stoppu stöðin sem við áttum að fara út til að fara í Gaudi garðinn daginn eftir!) eftir að vera búin að rölta í 2 tíma föttuðum við það!!! dööö en þar sem við vorum næstum komin í garðinn þá héldum við bara áfram:) góð æfing!!! Garðurinn var geðveikt flottur og þetta rölt var alveg þess virði þegar við skoðum hann!! en við tókum metroinn til baka!! og drifum okkur út að borða;)
Um kvöldið fórum við á ekkert smá flottan stað í svona indverskum þema þannig við sáttum upp á palli umkringd púðum og þarna lágum við ásamt einhverjum gaur frá India sem við hittum á Hostelinu og spjölluðum;)
á mánudagsmorgunn reif ég liðið á fætir um 8 fengum okkur morgunmat og fórum svo að skoða kirkjuna:) jibbí tók bara 1 tíma að rölta þanngað!! eftir það var bara rölt um og notið þessa að skoða þessa fallegu borg!! Ég mæli með að þið kíkið við tækifæri því hún er full af lífi það eru listamenn út um allt að gera magnaða hluti ef þeir er ekki að spila tónlist eða syngja þá eru þeir að gera ótrúlgar æfingar að standa á höndum 2 saman og halda hvor öðrum uppi æji þið skiljið mig þegar ég set myndir:) en nú er ég orðin mjög þreytt! Góða nótt!!
love u all
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
8 comments:
Já já, það er líka alveg frábært hérna á Íslandi. Svalt loft og hreint vatn... sem rignir alveg stanslaust yfir mann. Helvítis haust!!!
ummmm vid eigum besta vatnid!! en hvernig gengur ad plana heimsóknina til mín:) ég sakna ykkar!!
Ohh spennandi!! Greinilega ógeðslega gaman!! En hvað þú hefur verið vinsæl að rífa fólkið fram úr svona snemma heheheh ;)
ammm kannski ekki alveg strax en eftir smá labb var ég lang vinsælust;)
Það er svo stutt síðan þú varst í sofa á morgnanna hópnum og búin að vera þar í 20 og eitthvað ár!!!!
Hola mamá!! jamm en nú vil ég barasta fara á fætur og nota daginn!!! vá mín er orðin gömul!!
Indislegt að heyra hvað það var gaman hjá þér. Vildum óska þess að geta fengið að upplifa eitthvað af þessu með þér. .. .. . ..
Elskum þig. B&E
Hola B&E vildi líla óska að þið væruð hja mér!!! sakna ykkar ógó mikið!!! en vá eftir 2 mánuði kem ég og knúsa ykkur!!! jibbbí love u endalaust
Post a Comment