Jæjá já mín ætlaði að vera svaka dugleg áðan og horfa á sænskt sjónvarp!! En nobb mín fann einu enskustöðina í tvinu!!! þannig ég horfði bara á handlaginheimilis faðir í góðum fíling:)
En annars er ég búin að eiga frábæran dag!! Ég fór í skólan og lærði fullt af sniðugum orðum...
Svo fór ég og Vera á ströndina komum við á litlum krúttlegum take away stað með geðveikt góðum heimatilbúnum spænskum mat!! og kostar bara 2,90 evrur!!
Svo hittum við nokkra krakka á ströndini flestir frá þýskalandi og ein hollensk stelpa allt alveg æðslegir krakkar!! Þau höfðu öll svaka áhuga á Íslandi og ein hélt að við værum með hunda sleða!! hvað er málið líkist ég eskimóa!!!!Þau reyndu svo að tala íslensku!! En nei ekki séns!! En allavega ég ætla kíkja á djammið með þeim um helgina;)
Ég lenti samt í frekar óþægilegu dæmi í dag, ég var að ná í strákana í skólan og er að koma þeim inn í bílinn, þá keirir einhver kall upp að mér og byrjar að babla eitthvað ég seigist ekki tala spænsku og týpíst eini spánverjin sem ég hef hitt sem talar smá ensku er þetta gerpi!! en hann var að spurja hvort að þetta væru börnin mín og hvort ég væri þarna alltaf á þessum tíma!!!! Frekar óþægilegt hann var eitthvað svo spúkí ég var hrædd um að hann mundi elta mig heim!!!
Ef hann er þarna á morgunn ætla ég á fara æfa box!!!
En nú er komin lúlu tími hjá mér:)
Góða nótt
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
6 comments:
Hæj sæta!! Ætlaði bara að kasta a þig kveðju og gott að sjá hvað er gaman hjá þér ;) Ef þetta vírdó lætur þig ekki í friði þá kem ég og buffa hann!! Hehhh
Takk sæta:) vona að það fari að skána í vinnuni;) læt þig vita hvort mér vantar að þú buffir hann;)
Segðu honum bara að mamma þín eða amma þín geti örugglega barið hann í buff ef hann er að kássast í þér
Hvað er klukkan eiginlega í tölvunni hjá þér ?????
Klukkan er núna 20:30 í tölvunui:) Hann hljóp í burtu um leið og ég minntist á þig!!
Halló halló!
Takk fyrir að senda mér sms og láta mig vita af blogginu þínu.
Og ég var líka svekkt að ná ekki að hitta þig áður en þú fórst... en næ nú eitthvað að fylgjast með þér hérna.
... og svo er ég líka með blogg..
ástarkveðja! - sólveig
Post a Comment