Þá kom loksins að því að stelpan fór á djammið hérna!!! Ætlaði nú ekki að nenna því það var búin að vera gegjuð rigning allan daginn og mín var bara í kósý fíling:) En svo hringdi Anna í mig og náði að plata mig út:)
Þegar ég kom á lesta stöðina var þar hópur af strákum sem voru að steggja vin sinn og fengu mig til að kissa hann á kinnina!! ég var svona létt að fíla að rugla í þeim og þeir gáfu mér þennan fína bol með mynd af steggnum:) Þetta var svo frekar fyndin leið til Valencia 1 stelpa með 16 gaura í kringum sig og bara 3 töluðu spænsku þannig þeir voru á fullu að þíða allt ruglið fyrir hinna.. fólk glápti mikið!!! En þetta eru fínir gaurar og ég tók númerið hjá þeim og við ætlum að djamm saman:)
Ég fór heim til Önnu og við skelltum okkur svo út að borða. Eftir mat fórum við að rölta á milli staðana og leita að réttu tónlistini. Við hittum svo aðra bekkjasystir okkar og hún var með einhverjum 2 þýskum gaurum og við djömmuðum saman:)
En það kom mér ekkert smá á óvar hvað fólk er yndislegt!! við vorum á einum stað að dansa og ég var alveg að pissa á mig og klóstið var ekki beint geðslegt og ég skal seigja ykkur það þegar maður er edrú þá lætur maður sig ekki bara hafa það!!! en allavega ég ætlaði að hlaupa á næsta stað til þess að pissa en þá sögðu 2 norskar stelpur sem við höfðum hitt að ég gæti bara tekið lyklana af íbúðini þeirra og farið þangað að pissa!! Bara nice íbúðin var beint á móti staðnum sem við vörum á þannig ég var mjög þakklát:) svo buðu þær mér líka í party eftir 2 vikur:) frábærar stelpur ætla að taka myndavél með næst til að geta sínt ykkur myndir:)
En svo var maður bara alveg búin um 5 og ég og Anna tókum leigubíl heim til hennar og láum bara upp í rúmi að tala til 7:)
Svo vaknaði maður um 10 leið einsog ég væri þunn!!! ósangjarnt ég hélt ég ætti að vera laus við það drasl núna!! En við drifum okkur á ströndina og ég lá þar einsog klessa til klukkan 6 ahhhhhhhhh I love it!! svo fékk ég mér bara ís nammi namm og dreif mig svo heim:)
Það er svo frábært fólk hérna ég má sofa allstaðar og allir eru bara eitthvað svo afslappaðir þetta er bara gegjað!!! mæli með að þið kíkið á mig fallega fólk!! væri bara gaman!!
Love u all!!!
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
4 comments:
Einn góðann veðurdag kem ég í heimsókn og dreg eikkerja með mér. Hvenær kemuru heim annars....? Er farinn að bíða spenntur eftir köngulónni!
ooo það væri ekki leiðinlegt að liggja á ströndinni með þér og lepja á ís..hmmmm sakna þín og læt mig bara dreyma í bili heheh kisskiss
Gunni kóngulóin er spennt að hitta þig líka:) ég kem heim 20 des!!!
eg sakna þín mega babe!! þegar þú kemur förum við beint á ströndina og fáum okkur ís!!! knús og kossar!!
Post a Comment