Gleðilegan valentínusardag
Jamm jamm í dag er dagurinn sem allar single konur óttast ekki satt!!
Ég fékk sms í morgun frá vinkonu minni.. sem stóð í að ég ætti að fara út í blómabúð og kaupa blóm handa sjálfri mér jibbbí.... ég veit það nú ekki er ekki það mikið fyrir blóm að ég fara að eiða pening í það sjálf ef ég á að seigja satt frá!!
En dagurinn byrjaði æðislega hjá mér þar sem ég lá upp í rúmi í draumaheimi dreymandi um drauma prinssinn minn þá var öskrað og ég heiri Janien öskra á Javiar að taka KAKALAKAN úr baðkarinu!! Já ég er sko sannalega á besta stað!! Þetta er í annað sinn sem við fáum svona kvikindi í heimsókn og ég get sagt ykkur það að hér eftir er ég með fullgilda afsökun fyrir að sofa með kveikt ljós það er ekki út af því að ég er mirkfælin.... ;)
En annars var ég að koma heim úr hugleiðslu hóp sem ég var að byrja í.. Það sem gerir það áhugavert fyrir mig að þetta er ekki bara hugleiðsla heldur líka fræðsla. Það er nefnlega svo skrítið hvað einfaldir hlutir geta verið svo fáránlega erfiðir. Ég veit ekki með ykkur en allavega þegar ég leifi hausnum mínum að burja að plana þá planar hann ekki bara 1 dag hann er búin að ákveða allt fyrir fram og þvílík plön ég er orðin all talandi í öllum tungumálum ég er búin að bú allstaðar og ég er svo rík að ég veit ekki aura minna tal!! En ekert gerist af þessu því maður verður bara niðurdregin þegar maður áttar sig á því að maður er enþá á nákvæmlega sama stað og fyrir 30 sekúndum þegar maður byrjaði að plana.. svo ég fékk gott verkefni í dag hætta að hugsa!! hljómar einfalt en vóóóó´nób ekki svo einfalt skal ég seigja ykkur ég var ekki fyrr komin út og á röltinu heim áður en ég var orðin kvenkyns útgáfan af Dhalílama jújú en svona er þetta bara þetta tekur tíma:) En nóg um það hvað hef ég verið að bralla meira hérna á Spáni . Ég fór um daginn í lestaferð til Xativa sem er um klukkustund í lest héðan. Ég og Janien fórum saman, þetta er yndislegur lítil bær og svona það helsta við hann er Kastalinn og audda fórum við í hann og þar sem við sáum hann nú alveg þarna upp á hæðini þurtum við nú ekkert kort!! humm en eftir að vera búin að ganga í þó nokkra hringji og út enda bæarins áakváðum við að byrja að spyrja til vegar og komumst við loks á leiðarenda. Alltaf gaman að skoða kastala fyrir utan 1 hvar eru allar dýflesunar og leynigöngin? sko þegar ég les ævintýri eru alltaf sjóleiðis í þeim en í alvöruni er þetta barasta opið svæði með nokkrum steinum hlöðnum!! En eftir að hafa 1 3 tímum í sólbaði þar var tími til þessa að tía sig niður, það er rúm klukkutíma ganga niður og við röltum af stað en viti menn það stopaði bíl hjá okkur og bauð okkur far og við eins og asnar sögðum já og áður en við vissum af vorum við komnar aftur í eld gamla 3 dyra druslu með 2 pólverjum við litum á hvor aðra og hristum hausin! En þeir buðu okkur að fara með þeim að fá okkur kaffi.. já já ok við vildum ekkert vera dónalegar en svo byrja þeir að keira með okkur út úr bænum! Við hugsum báðar frábært við verðum drepnar!!
En þeir fara með okkur í ógeðslega búð svona super markað af verstu tegund!! og annar seigir við okkur fáið ykkur allt sem þið viljið ég borga!! Við afþökkuðum pent og byrjuð að plana að hlaupa út en hinn elti okkur og við báðum hann að fara beint með okkur á lestastöðina!! Hinn kom þá út og gaf okkur sitt hvort súkkulaði stykkið!! JIBBÍ En þessar elskur komu okkur niður á lestastöðina og við þutum úr bílnum og við vorum svo heppnar að það var akkkurat lest að fara sem við komust með:) Ég lét nú ekki bjóða mér þessa leti meir þannig ég dróg Janein með mér í gymið og héðan í frá er það fótgangandi takk fyrir!!
Annars bara svo þið vitið ef einhver vill kíkja í heimsókn þá er það minnsta málið heimilið mitt er opið öllum:) Jamm jamm en annars er barasta allt gott að frétta... núna er bloggið komið í gang aftur ég tek nú samt bara 1 dag í 1 með það;)
MISS YOU ALL
Ykkar kjáni á Spáni
Áslaug eða Áslang eins og spánverja skrifa það! ALLtaf
17 comments:
Gott að þið sluppuð frá pólverjunum, en Áslaug leynigöng eru leynigöng og það þarf að leyta að þeim því þau eru í leyni!!!!
skarplega athugað hjá þér! Við hefðum kannski átt að eiða minni tíma í sólbaði og meiri tíma í að leita!!!
Það var loksins að þú hafðir tíma til að blogga, ég hélt nú bara hreint út sagt að þú værir orðin að brunarústum á einhverri sólarströndinni :p Og það er hárrétt sem að móðir þín segir, svona leyndógöng eru ekkert fyrir framan nefið á mér. Hélstu kannski að þú myndir bara rúlla ofan í þau í sólbaði bara rétt sisvona?
En mikið er nú gaman að þú ert heil á húfi og hefur það gott
fyrir framan nefið á þér átti að vera! Biðst forláts.
Akkurat, þetta er akkurat ástæðan fyrir að þú þarft að koma í heimsókn við þurfum að fara að leita af þessum göngum!!
En annars er gaman að heira í þér kæri bróðir!!
Ég las á síðuni þinni að þú ert hættur að reyna að fella hvað þú ert æðislegur og ég verð að seigja að þú ert hetja!! Nú eiga menn eftir að verða öfundsjúkir!
Segðu, ég er hættur að reyna að vera ekki svona frábær eins og ég að sjálfsögðu er. Nú verður fólk bara að fá minnimáttarkennd :p
SAKNA ÞÍN MEST Í HEIMI!!! Þú átt ALDREI að fara uppí bíl með ókunnugum,mundu það stelpa...En gott að það fór ekki verr....Leynigöng,heheh já það heitir ekki LEYNIGÖNG fyrir ekki neitt þú þarft að finna þau;) En elska þig mest ástin mín og hugsa til þín á hverjum degi....
Hola Íris mín!
Hvað voða vita alli mikið um þessi leynigöng!!
En ástin mín ég sakna þín svo mikið að það fá engin orð líst!! hvenar á svo að koma til mín!!
Kiss kiss
þín Áslaug
jesús áslaug!! ég birjaði að svitna og svitna þegar ég las að þið fóruð upp í bíl með ókunnugum!! En gott að þið sluppuð heilar á húfi:) Sakna þín ógeðslega!! Hvenær kemuru heim eða hvenær á ég að koma í heimsókn? :)
Hola...
Ég mundi seigja í apríl væri best að koma í heimsókn þá er orði fínt að fara á ströndina;)
Ég sakna þín líka og við þurfum að tala saman um DK pæja!! Er það ekkki en þá málið?
Endilega sendu mér línu um það ef þú getur ashleyosk@hotmail.com
Adios
Bara segja hæ og takk fyrir fallegu orðin :)
Sæl Áslaug mín
Gaman að lesa bloggið þitt á nýjan leik og ég segi bara eins og mömmur segja við börnin sín ...ekki upp í bíl með ókunnugum :)
Hafðu það gott og farðu nú varlega út í þessum stóra heimi. Líst vel á þetta að hugsa ekki neitt...þarf að prófa það einn daginn.+
knús frá okkur hér á Móabarðinu
hola Eva babe....
þú ert alltaf í hjarta mínu...
elska þig
10 dagar áslaug, 10 dagar síðan þú bloggaðir seinast. Ég vil blogg, ég vil ferskt blogg takk fyrir.
Takk fyrir Fallega SMS Ið sem þú sendir mér,það var allveg ÆÐISLEGT að fá svona fallegt;) Ég ætla að reyna að koma sem fyrst til þín...Er búin að breyta passwordinu á síðunni minni og það er nafnið á stelpunni hjá Önnu systir;)
hola Gunni...
þú gafst mér spark í rassinn
nú skal blogga...
Halló Íris skvís;)
Ég vona að þú kíkir á mig telpa ég sakna þín svo!!!!!
ég var einmitt að sðá í þessu hvað væri uppi með síðuna
adios
Post a Comment