Saturday, April 07, 2007

It is true.......... americans like to eat:)
















Hellú allir
Já ég fór sko í matarboð í gær sem var endalaust fyndið!!!
Við vorum 8 og 3 af okkur voru Ameríkanar.........
Þetta byrjaði mjög vel og ítalanir elduðu fyrir okkur hrísgrjónabollur fylltar með mismunandi drasla :)
Og þessi elska á sem er á myndunum byrjaði að tala um hvað hún gæti borðað mikið og hún gæti sko auðveldlega borðað 9 bolur og við audda vorum fljót að leggja peninga á borðið og veðmálið byrjaði.. Eins og þið sjáið byrjaði þetta allt mjög vel og eftir 4 bolur byrjaði hún að hafa smá áhyggjur.. Ég tók að mér þjálfara starfið hahaha ég lét hana hoppa og drekka mikið vatn og hvati hana áfram!! Eftir 2 1/2 klukkutíma og 7 1/2 stk gafst hún svo upp............ já hún sá mjög eftir þessu og eyddi góðum tíma inn á baði að reyna að skila þessu en ekkert tókst þannig ég held að hún ætli með mér í ræktina í vikuni!!!
En annars var þetta fínt kvöld... Ég fór heim um 3 og sofnaði á sófanum horfandi á sex in the city og vaknaði eins og þunn manneskja.. ég er farin að halda það að vera þunn hafi ekkert með áfengi að gera heldur svefnin!!
En ég hressti mig við og fór í hjólatúr niður á strönd og það var yndislegt:)
Mamma er búin að vera dugleg að hringja í mig yfir hátíðina svo það er næstum eins og ég sé hjá þeim:) TAKK FYRIR ÞAÐ!!!
En annars vona ég að allir hafi það gott.......
Bless í bili





1 comment:

Anonymous said...

Jeg kan jo ikke forstå noget, skriv dog dansk!